föstudagur, mars 29, 2002

Frakkar geta talað alveg hrikalega mikið!!!! Við (ég og fleiri) erum búin að vera að fara með 3 frakka um landið núna undanfarna viku og núna var ég að koma frá Snæfellsnesi þar sem við fórum upp á topp Snæfellsjökuls. Flestir voru á skíðum en ég bar brettið mitt á bakinu. Besta veðrið á landinu og við á toppnum. Það var líka æðislegt að renna sér niður. Í dag fór ég í la lagoon bleu og svo í mat þar. 3.daga ferð, frítt og FBSR borgar brúsann. Geri einhver betur.
Það sem eftir lifir af páskum verður því tekið rólega en 2.apríl næstkomandi verður djammað og farið á stórtónleika með THE STROKES.
Gleðilega páska (ef svoleiðis ar sagt???) og passið ykkur á að slasast ekki........

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home