föstudagur, mars 22, 2002

Ég fór á uppistand á Sportkaffi í gær. Þetta er í annað sinn sem ég fer edrú inn á þennan stað, mjög athyglisvert. Þetta var sko svaka stuð. Okkur var sagt að þetta byrjaði klukkan átta þ.a. við mættum korter yfir og vorum alveg vissar um að við værum alltof seinar og myndum ekki fá nein sæti. But no...það voru bara nokkrar hræður þarna inni. Ég held við höfum setið þarna í tvo tíma áður en þetta byrjaði! En þetta var nú bara allt í lagi, við fengum okkur bara bjór og vorum bara í kaffihúsastemmningu. Svo voru þeir nú alveg ágætir aumingja mennirnir sem voru að reyna að vera fyndnir. Ég held að ég hafi samt hlegið meira að strákunum sem sátu á næsta borði, af því að þeir hlógu svo asnalega. Einn þeirra hló bókstaflega eins og asni íha íha :o)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home