miðvikudagur, mars 20, 2002

ókei nú er klukkan að verða eitt og þá er tæknilega séð kominn miðvikudagur og þá er löglegt að fara að skipuleggja næstu helgi :oþ Þeir sem hafa e-ð fylgst með mér síðustu vikur hafa sjálfsagt tekið eftir því að ég er búin að vera í e-u bindindi. Og það er vægast sagt orðið grautfúlt!! Djöfull langar mig að fara að djamma!! Svo ég er að fara á hrúgandi magic fyllerí um helgina...jæja kannski ég leyfi mér að fá EINN bjór, en alls ekki fleiri en tvo! Ég reyndi samt að fara edrú niðrí bæ um daginn en ég sofnaði því miður á leiðinni. Það er einmitt vandamálið. Ég gæti auðveldlega "djammað" án áfengis alla nóttina ef ég yrði ekki dauðþreytt klukkan tólf!! Vá hvað ég er gáfuð, ég er sem sagt búin að uppgötva tilgang áfengis: að halda sér vakandi svo maður geti dansað alla nóttina :o)
Ef e-r hefur lausn á vanda mínum (bannað að dópa mig) þá getur sá hinn sami haft samband við mig hjá AA-samtökunum. Ég sit aftast með stráhatt og sólgleraugu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home