föstudagur, mars 15, 2002

Þar sem ég verð ekki viðræðuhæfur næstu daga þá munt þú mín kæra Hrefna axla þá ábyrgð sem þarf til að koma skrílnum á fætur EFTIR helgi til að fara á skauta. Þótt það muni bara kannski mæta þrír á skauta þá verður það í lagi ef ég er með, ég tala víst á við marga. Kannski hef ég bara svona persónuleika og allir eru þeir hver öðrum skemmtilegri. Ég gæti kannski bara farið einn á skauta en samt haldið uppi fjörinu í höllinni. Það væri ódýrt, að borga einu sinni fyrir marga.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home