sunnudagur, janúar 02, 2005

Fundur verður haldin í Danaútibúi

Formaður mun koma á fimmtudag til að svipast um starf félagsins sem er í gangi í útibúi okkar í Danaveldi.

Já mar ég er að koma á fimmtudag og verð fram á mánudag.... ég vænti þess að allir félagar hitti mig og drekki nokkra vel valda danska bjóra með mér.

vúhú!

laugardagur, desember 25, 2004

Gleðileg Jól öll sömul!!!!

Vonandi eru allir búnir að borða á sig gat og hafa það massa gott. Ég veit ég er massa sátt við allt.... að vísu sit ég í vinnunni núna en það er allt í lagi.

En vonandi hitti ég ykkur sem flest fljótlega.

þriðjudagur, desember 21, 2004

Meðlimir félagsins hafa staðið sig með sóma í djammi og drykkju. Næstum of vel... en nú tekur við að minnsta kosti ein helgi í frí. Sumir vilja meina að þetta sé kærkomið frí en aðrir halda því fram að það verður bara tekið enn meira á því helgina þar á eftir.

Síðasta djamm var súrt....en á góðann máta. SingStar keppni var tekin og auðvitað uppboðsdrykkjuleikurinn og fleira sem tilheyrir góðum Díónýsusarfundi.

Formaður var alveg einstaklega lúinn á sunnudag og jafnvel fram á mánudag.

En hvað ætlar fólk að gera á áramótum?

miðvikudagur, desember 01, 2004

Kaffi

Ég skil ekkert í ykkur... enginn búinn að koma og heimta konfekt nema Birta Sif.

Ætliði að djamma eitthvað um helgina?


Gleðilegan útborgunardag.... og ó já Fullveldisdag líka.

sunnudagur, nóvember 28, 2004

operation KONFEKT tókst með ágætum!

Þrír félagar ákváðu að fagna vel heppnuðu verki með að fara á tjúttið.... höstl tókst hjá sumum en aðrir hefðu mátt standa sig betur. hehehe.

Þórunn ég þakka góða helgi... og þið hin sem hafið látið sjá ykkur og í ykkur heyra það var svaka stuð.

operation KONFEKT tókst með ágætum!

Þrír félagar ákváðu að fagna vel heppnuðu verki með að fara á tjúttið.... höstl tókst hjá sumum en aðrir hefðu mátt standa sig betur. hehehe.

Þórunn ég þakka góða helgi... og þið hin sem hafið látið sjá ykkur og í ykkur heyra það var svaka stuð.

föstudagur, nóvember 19, 2004

Einn.... Tveir.... og HELGIIIII!

Sælir félagar... þakka kærlega fyrir skemmtilega helgi sem leið. Ég held ég haldi mig frá jelloshots á næstunni einnig fari varlega í að sýna sönghæfileika mína í SingStar.

Ég var að spæla hverjir vilja kíkja heim til mín á morgun og baka smákökur og föndra konfekt? Látið mig vita.

Ég er orðin illa bæld...ég vakna... ég fer í vinnuna...vinn fram á kvöld... kem heim til mín... kveiki á imbanum... sofna í lazyboyinum... vakna um 2 leytið... færi mig inn í rúm...og endurtek síðan aftur. Ég vil endilega breyta þessari hringrás í kveld!



föstudagur, nóvember 12, 2004

TEITI TEITI TEITI.....

Partý að hætti Díonýsusar verður haldið annað kvöld í tilefni af komu útibússtjóranna okkar í Danmörku til aðalstöðva. Hlaupkennt áfengi, drykkjuleikir og söngur er liðir í dagskránni. Félagar eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna komu sína til formanns.