mánudagur, mars 11, 2002

Kristín og brúðkaup kemur ekki á óvart!!! Ég mun koma til með að sitja á ganginum í brúðkaupi þeirra kristínar og bjarka, bara svo þau muni bæði tala við mig í framtíðinni. he he, hver hefur ekki heyrt undanfarið: "vilt þú vera blár pinni?...."nei hún er mamma,vinkona,frænka whatever mín hún verður rauður pinni!"

Mér skilst að díonýsusarfélagar sem lögðu land undir fót um helgina hafi náð að halda uppi heiðri félagsins. Vona bara nú að einhver þeirra skrifi almennilega ferðasögu.

Laugardaginn var vinnuteiti hjá mér með brjálæðislega góðum mat og djamm fram undir morgun. Ég lagði leið mína á aðal snobbstað sem Ísland hefur upp á að bjóða ákveðin stað sem er kenndur við geimvísindarannsóknir ameríkana. Ég skemmti mér konunglega þar hitti aðra meðlimi félagsins má þar helst nefna Fúsa. Ég stórlega efa að margir hafi farið á þann stað og dansað ballet við söng Stebba Hilmars. En Hrebbnu tókst það ásamt því að dansa vélmennadansinn. Ég veit ekki hvað er að mér stundum. En vá hvað það var gaman. Ég kenndi Fúsa hvernig á að farða tilraunadýrið var vinur hans, hehe já ok teldu þrír mjög fáranlegir hlutir komnir sem ég gerði þarna inni sem ekki beint hæfðu umhverfinu. OG þetta er bara það sem ég segi ykkur.
Þegar búið var að henda okkur út af Nasa þá var haldið á Glauminn. Tekinn var hringur þar en við sáum ekkert skemmtilegt fólk því var ákveðið að halda heim aftur. Er heim var komið var partýið ennþá í fullu fjöri. Haldið var áfram þangað til lappirnar voru búnar að dansa gat í gólfið þá var ákveðið að fara að sofa.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home