fimmtudagur, mars 07, 2002

Kristín ég er búin að fá niðurstöðurnar sko en mér finnst þær ekki nógu góðar. Ekki til að komast allavega inn í skólann sem mig langar mest í.
Birgðir eru (sem ég veit ekki hver á): Vodki, aðeins meiri vodki, passoa og svo á ég malibu og kahlua. Ég er að fara á smá vinnudjamm á laugardag þannig tequilaþambarinn er ekki sú eina sem verður ekki róleg um helgina. Með skautaferðina þá kemst ég örugglega ekki á laugardag. En aðrir tímar eru að mestu leyti opnir. Við þurfum bara að komast að niðurstöðu um tíma, langbest væri að flestir gætu mætt.
ÉG er ekkert smá þreytt enda vann ég í næstum 17 tíma samfleytt í gær. Kláraði að vinna á skrifstofunni fór heim eldaði, borðaði, gekk frá og svo beint á kaffihúsið og var þar til að verða hálf tvö. GEISP ég er greinilega ekki eins ofvirk og ég var. Því þetta tók virkilega á.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home