miðvikudagur, febrúar 25, 2004

Djamm helgarinnar!

Það fólk sem ég hitti um helgina á djamminu: Rannveig, Þráinn, Fúsi, Gaui, Kiddi, Gudjó uh man ekki meira.

En ég verð að segja að Rannveig má eiga það að hún var rugluðust á djamminu....hótandi að lemja allt og alla.
Þráinn, Kiddi og Fúsi stóðu liggur við á barnum með rör ofan í flöskurnar.... samt var Fúsi á bíl (þannig hann var áhorfandi að mestu leyti) en Fúsi hefur nú bara ekki sést á djamminu síðan hann fann sér konu.... ég spyr bara fáum við ekkert að sjá hana eða hvað?

Ég skemmti mér mjöööög vel tók nokkur skot með strákunum, helti heilum bjór á golfið óvart og ákvað að markaðsetja vinkonur mínar sem voru á lausu. öööö já og það tókst en samt ekki alveg nógu vel.

Hildur skemmtu þér vel í Köben og drekktu nokkra öllara fyrir mig.

En ég var að spæla í spilakveldi á fimmtudag? hver er til?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home