fimmtudagur, júlí 25, 2002

Ég les líka! Og mér er líka sama ef það eru meiri en fimm línur. Sko það hefur ekki verið neitt fyllerísrugl undanfarið því enginn hefur verið á fyllerí! Svo einfalt er það. Um helgina á samt að bæta úr því! Það er UBERDJAMM á laugardag....og audda ætla allir Díonýsusar meðlimir að mæta! Staðsetning er enn óljós en það verður sko drukkið!
Ákveðin lægð hefur verið yfir félaginu undanfarnar vikur, en við bætum úr því.

Nú eru einungis tvær vikur þangað til ég flyt! Hyperstress í gangi skal ég segja ykkur. Ég hætti að vinna bráðum líka! vííííí það verður sko gaman. Þá kannski nær maður upp smá svefni, get farið og kíkt hvernig golfvöllurinn lítur út og síðast og allra mikilvægast stússast í mínum málum! Ef einhver vill gefa mér pening eru þeir mjög vel þegnir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home